Anna Kristín
Ég útskrifaðist sem sálfræðingur frá Háskóla Íslands vorið 2015 og fékk löggildingu sama ár. Í starfi mínu sinni ég meðferð við sálrænum vanda ungmenna og fullorðinna á EMDR stofunni Vallakór 4 í Kópavogi. Ég hef verið að hjálpa fólki að vinna úr áfallastreituröskun, kvíða, streitu og lágu sjálfsmati svo dæmi séu nefnd. Í starfi mínu legg ég áherslu á að finna inngrip sem hentar hverjum og einum. Ég hef sótt fjölda námskeiða hérlendis og erlendis og sérhæft mig í áfallameðferðum á borð við EMDR og brainspotting en einnig nota ég hugræna atferlismeðferð; HAM og almenna samtalsmeðferð á íslensku og ensku. Val á inngripi fer fram eftir að gaumgæfilegt mat hefur átt sér stað og fer ávallt eftir þörfum hvers einstaklings.
Símenntun
Apríl 2021 (IS):Treating Complex Trauma with EMDR Therapy and Structural Dissociation Theory: Effectively Treating "Parts". Leiðbeinandi Kathleen Martin, LCSW
Júlí 2018 (IT): Jógakennarapróf RYT 200 á Ítalíu. Kennari Enrico De Luca.
Ágúst 2017 (IS): Advancing Excellence in Treating Complex Trauma. Leiðbeinandi Kathleen Martin, LCSW.
Apríl 2017 (UK): Brainspotting phase 2. Leiðbeinandi Dr. M. Grixti.
Febrúar 2017 (UK): Brainspotting phase 1. Leiðbeinandi Dr. M. Grixti.
Október 2016 (UK): EMDR Toolbox - Complex Trauma Workshop. Leiðbeinandi Dr. J. Knipe.
Apríl 2016 (IS): Námskeið í að auka stöðugleika og auðvelda úrvinnslu hjá skjólstæðingum með mikla áfallasögu. Leiðbeinendur Dr. Gyða Eyjólfsdóttir og Margrét Blöndal.
Desember 2015 (IS): EMDR level 2. Leiðbeinandi Dr. R. Solomon.
Maí 2015 (IS): EMDR level 1. Leiðbeinandi Dr. R. Solomon.